Snillingar

Ég á ekki til orð. Grin

Sá sem gerði þetta er snillingur og sá sem tók við peningnum og greiddi 7.000 kr tilbaka er enn meiri snillingur.

Ég tek ofan fyrir ykkur.


mbl.is Notaði seðil með mynd af Davíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

aldurskomplexar

Ok fyrsta sinn sem ég fæ aldurskomplex. Ekki það að ég sé feimin við að vera 28 ára heldur eru litlu systkin vina minna (sum þeirra passaði ég á yngri árum) og yngri frændsystkin mín farin að fjölga sér. Halló halló ætti þetta ekki að vera í aldursröð ? Ég hélt maður þyrfti að sækja um skriflega og taka númer í biðröðinni. Ég hef eitthvað misskilið þetta.


Facebook ávanabindandi ?

Ligg heima með kvef. Grey litla ég. Var ekki skemmtilegur ferðafélagi fyrir Baldvin samstarfsmann minn á þriðjudaginn ef ég var ekki að sjúga upp í nefið eða snýta mér þá hnerraði ég á hann :-( Kom svo heim og fór beint upp í sófa horfði á video og snýtti mér. Gerði algjör mistök með því að fara í Jiu Jitsu um kvöldið (gat ekki sleppt því - ávanabindandi íþrótt). Eftir það kom ég heim og fór í sturtu og skalf svo úr kulda fram á nótt. Svaf síðan lítið fyrir hori, kulda og vanlíðan. Tilkynnti mig veika í vinnu í morgun. Dagurinn í dag er búinn að vera einfaldur : tölvan - netið - facebook. Lagði mig frá 10-14 svo aftur tölvan.

Nú er bara facebook aðalmálið. Ég hef grun um að það sé eitthvað ávanabindandi við þetta.

Annars er ég á fullu að setja inn myndir af bústaðnum fyrir mömmu og pabba inn í vefmyndaalbúm. Er búin að taka svo margar myndir á svo mörgum byggingastigum og ég nenni ekkert að bjóða fólki heim að skoða myndir. Einfaldara að bjóða þeim að skoða myndasíðu á netinu.

Jæja þetta er búin að vera ágætis pása frá facebook.


September blús

Of mikið um að vera til að skrifa á bloggið þessa dagana. Samt ekkert fréttnæmt sem ég get sagt frá.

Búið að vera mikið um að vera í vinnunni að vanda. Frábær árangur búinn að vera í sumar. Við eigum bara þokkalegt Íslandsmet :-)

Er búin með 1 mánuð í einkaþjálfun og vá ég mæli með því fyrir alla. Er nú að prófa að standa á eigin fótum í þessu það gengur ekki nógu vel. Veit hins vegar að september er afar busy mánuður og ég hefði þurft að skrópa í helming tímanna í einkaþjálfuninni. Ætla með Siggu sys aftur í október vonandi.

Jiu Jitzu komið á fullt mæli líka með því fyrir alla. Fór í gærkvöldi og vá hvað ég er með marga marbletti. Þetta er yndislegasta íþrótt sem ég hef prófað.

Þarf að vera duglegri að borða rétt ! Að halda matardagbók er algjör snilld sérstaklega þar sem ég sendi hana til þjálfarans sem skammar mig fyrir hvert hliðarskref. Mér líður mikið betur.

Tók mér frí í dag og mánudaginn. Er búin að vera hálfslöpp þessa vikuna held það sé af því ég er ekki búin að taka sumarfrí. Ætla ekki að hleypa mér niður í neitt þunglyndi. Ætla að gera eitthvað skemmtilegt um helgina. Kem mér bara ekki af stað úr bænum ;-)

KS


Santa Maria á Laugavegi

Var að koma heim. Vorum með stelpuhitting í kvöld á stað sem heitir Santa Maria á Laugavegi. Mexikóskir réttir, svakalega góðir og verðið ótrúlegt. Allir réttir undir 1.000 kr. Magnið hæfilegt og eins og áður sagði alveg svakalega góðir réttir !!!! Ekki eins og allir hinir staðirnir þar sem 1/2 af verðinu er af því að það var svo frægur arkitekt sem raðaði myndunum á veggina eða allt eldað upp úr sömu uppskriftabókinni. Bara kósý veitingastaður með frábærum mat og frábæru þema. Góð þjónusta og þægilegt andrúmsloft.

Hrós vikunnar fer til Santa Maria ! Sá sem getur rekið veitingastað með þessi verð á sko skilið hrós!


Velkomnir heim

"Strákarnir okkar" eru lentir ! Wink Með silfrið í vasanum.

Velkomnir heim ! Það eru aldeilis móttökur sem þeir fá !

 


Fjölskylda sameinast í ókunnu landi

Það gleður mig að fjölskyldan sé sameinuð. Það á aldrei að aðskilja fjölskyldur, rétt hefði verið að senda þau öll 3 úr landi.

Ísland er ekki þeirra heimili. Þó að barnið sé skírt íslensku nafni í miðnafn gerir það barnið ekki að Íslending. Fjölmargir hafa komið fram og sagt Paul Ramses ekki vera flóttamann heldur mann sem leitar að betra lífi í vestrænu samfélagi. Það er gott og blessað að vilja sér og fjölskyldu sinni betra líf en menn verða að koma heiðarlega fram.

Mér finnst að sannir flóttamenn eigi rétt á að mál þeirra sé skoðað og reynt að aðstoða þá. En ég finn ekki til með þeim sem koma undir fölsku flaggi og reyna svo að ná kjölfestu með því að höfða til þjóðarsálarinnar - sem oft á tíðum er ansi meyr.

Mér fannst átakanlegt að sjá fullorðið fólk gráta af gleði í sjónvarpinu. Ég vildi að fjölskyldan hefði getað sameinast í einrúmi og grátið saman án þess að hafa myndavélar íslenskra fjölmiðla ofan í hálsmálinu. Að sjálfsögðu brjótast tilfinningar þeirra fram er þau hittast og maðurinn grætur þegar hann sér barn sitt á ný - sem hann vissi ekki hvort hann sæi aftur. Gefum þessari fjölskyldu næði til að vera saman og heyja sína baráttu í friði.

Leyfið okkur svo bara að vita hver niðurstaðan varð þegar hún er komin.


mbl.is Grátið af gleði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Facebook - seint koma sumir en ....

æ já .. by the way .. minns kominn á Facebook.

Alltaf nokkrum mánuðum á eftir hinum ... Blush


hvenær varð þetta heitast af öllu heitu ?

Hvenær varð Ásdís Rán það heitasta af öllu heitu og aðalfréttaefnið? Síðan hvenær fór mbl að skrifa svona fréttir? Að ÁR sé komin með bloggsíðu og tjái sig um ást á manni sínum, er það allt í einu fréttnæmt ?

Ég hefði ekki verið hissa á síðum DV eða Vísis en á mbl.....Ég varð nú bara fyrir vonbrigðum.

Æ komm on !


Enn um óvirðingu í íslensku samfélagi

Fyrra máli mínu til stuðnings. Óvirðing íslenskra ungmenna við yfirvald. Umfjöllun Ísland í dag um menningarnætur ævintýrið.

Ísland í dag. 25. ágúst 2008

Ísland í dag, 26. ágúst 2008

Að því birtu get ég sagt frá því að við fórum 4 saman niður í bæ rétt áður en tónleikarnir á Miklatúni kláruðust. Hljómsveitirnar stóðu sig misvel, mér fannst Jet Black Joe þó einkum Páll Rósinkrans standa sig einkar illa. Þetta var nú ein af aðalsveitunum þegar ég var 13/14/15 ára eitthvað svoleiðis. Idol þess tíma. Páll var ekki í neinum tengslum við hljómsveitina. Ný dönsk stóð sig prýðilega ég var búin að gleyma hversu góð hljómsveit þetta er. Ég sem meira að segja sagði við kunningja minn um Verslunarmannahelgina að ég þyldi ekki Björn Jörund. Það hefur breyst á einni menningarnóttu. Nú þarf ég bara að horfa á Sódómu aftur - skv. honum þá á ég að fíla Björn Jörund í botn eftir myndina. Mér finnst nú samt alltaf eins og það sé einhver keppni í gangi milli Björns og Daníels um athyglina. ??

En alla veganna ég fór sem sagt niður í bæ, horfði á flugeldasýninguna, rölti niður Laugaveginn og Austurstræti niður á Ingólfstorg og svo tilbaka í bílinn. Þegar við komum í aðalstrætið kíktum við inn í 10/11 því félaga minn vantaði vindla. Ég beið í "andyrinu" meðan hann fór inn. Þar varð ég fyrir menningarsjokki. Þarna inni var troðið af börnum og unglingum í misannarlegu ástandi. Flestir voru að kaupa sér tóbak - þó fæstir hefðu aldur til þess. Hinir voru margir hverjir að ræna og rupla í versluninni. Þarna var fólk að fá sér samlokur og sælgæti og einhvers konar ískrapa inni í versluninni og greiddu ekki krónu fyrir. Fóru svo saddir og sælir aftur á djammið. Öryggisverðirnir áttu fullt í fangi með að stýra hver kæmi inn og að enginn færi með neitt út ófrjálsri hendi en enginn fylgdist með inni í versluninni. Þegar félagi minn kom út sagði hann að verslunin hefði verið full af opnum og hálfkláruðum matvælum.

Það var skemmtileg atferliskönnun sem fór fram hjá okkur fjórum á leið okkar í gegnum bæinn. Við sáum hvernig landinn skemmtir sér og skemmtum okkur konunglega við það. Verst þótti mér þó að eiga iðulega fótum mínum fjör að launa þegar einhverjir töffarar snéru sér við. Drengirnir sneru sér við á hraða ljóssins og hræktu misstórum og misgeðslegum hrákum beint aftur fyrir sig og stóð nokk á sama hver varð fyrir þeim. 7 9 13 ég held ég hafi ekki orðið fyrir neinum þeirra þó það sé ómögulegt að segja í svona myrkri. Annars lærðum við mikið af mismunandi píkuskrækjum, að rífast við vinkonu sína, vin sinn og kærasta, allskonar drykkjusöngva, að taka kókaín í nefið fyrir framan lögreglumann án þess að hann taki eftir því, nýja dansa, hvar er gott að leggja sig ef maður verður þreyttur á djamminu, hvar er ekki gott að leggja sig ( í pollum), hverju má hreyta í lögreglumenn (öllu). 

Fróðleg nótt. Held að lögregluþjónninn í Ísland í dag hafi rétt fyrir sér, breytum þessu í Menningarhátíð í stað Menningarnótt.

Foreldrar horfið á þessar tvær umfjallanir og sjáið börnin ykkar.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband